Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 7. JULI 1983
FIMMTUDAGUR 7. JULI 1983
10
19
íþróttiri
umsjón: Jón Ólafsson
Unglinga-
mótin / golfí:
■ Unglingameistaramótum íslands í golfi lauk
nú um helgina á Nesvelli. Keppendur voru 79
frá 10 klúbbum, víðs vegar af landinu. Úrslitin
uröu sem hér segir:
1. Úlfar Jónsson, GK,28ó hógg.
2. Sigurbjörn Sigfússoít, GK, 310 högg.
3. Þorsteinn Hallgrímsson, GV, 320 högg.
í flokki 16 ára til 21 árs voru úrslit þessi:
1. Magnús Jónsson, GS, 297 högg.
2. Tryggvi Traustason, GK, 299 högg.
3. Gylfí Kristinsson, GS, 302 högg.
Leikbönná
leikbönn ofan
.......
■ Jóhann Hreiðarsson i eins leikja bann.
■ Þeir Lárus Jónsson, Snæfelli og Vigfús
Davíðsson voru í fyrradag dæmdir í tveggja
lcikja bann vegna 15 refsistiga og útafreksturs.
Jói Hreiöars, Þróttari, fékk cins leiks bann
vegna útafreksturs og einir fjórir í viðbót fóru í
cins leiks bann vegna 10 refsistiga. Þeir cru Jón
Kr. yMagnússon, Reyni Sandgerði. Óskar
Gunnarsson, Þór Akurcyri, Ingólfur Jónsson,
Selfossi og Jón B. Guðmundsson, Fylki. Já það
liorgar sig ekki að deila við dómarann, strákar!
Bikarkeppnin/
Framhaldið:
■ 8 liða úrslitin í Bikarkeppni KSÍ fara fram
miðvikudaginn 20. júlí. Undanúrslitin fara
síðan fram þann 10. ágúst og úrslitaicikur
bikarkeppninnar verður svo sunnudagin 28.
ágúst. Bara svona til fróöleiks sko.
Oddur og Óskar
tiugu i gegn á
Heimsmeistara-
móti stúdenta!
■ Oddur ■ Óskar
■ Strákarnir okkar sem keppa á Heimsmcist-
arumóti stúdenta i frjálsum íþróttum stóðu sig
mjög vel í undankeppninni í fyrradag og
komust báðir áfram fyrirhafnarlítiö. Oddur
varð þriðji í sínum riöli í 400 m hlaupi, hljóp á
46,96. en í þessum riöli náðist einmitt besti
tíminn, 46,25 af sovéskum pjakk. Tínii Odds
var sá áttundi besti og komst auðveldlega í
undanúrslitin. í kúluvarpinu þurfti Óskar að
varpa kúlunni cina 18 nietra til að komast í
undanúrslilin og til þess þurfti hann aðeins eitt
kast, 18,54 og þá var hann ekkert að reyna
meira á sig. 19,18 var besta kastið í gær og cnn
var þáð sovéskur pjakkur sem átti besta
árangurinn.
Þeir Óskar og Oddur hafa sótt um leyfi til að
fá að keppa í 200 m og kringlukusti en óvíst er
um hvort af því veröur þar eð þeir tilkynntu
þátttöku sína svo seint. Við vonum samt hið
allra besta. Heja, heja, hcja, heja. Vassavalla
bing-bong!
MARKALAUST HJA
VAL OG SKAGANUM
EFTIR FRAMLENGINGU
■ Markalaust jafntefli, varð niðurstað-
an í leik Vals og Skagamanna sem fram
fór í Laugardalnum í gær í 16-liða
úrslitum Bikarkeppni KSI. Framlengja
þurfti leikinn en ekki voru leikmenn á
skotskónum og er það miður.
Engin umtalsverð færi komu í fyrri
hálfleiknum, mestmegnis barátta og læti
sem einkenndu þann hálfleik, en í seinni
hálfleik náðu Skagamenn góðum tökum
á leiknum og sóttu grimmt að marki
rauðu herdeildarinnar.
Síðasta hálftímann áttu þeir nær alveg
og áttu þá mjög góð færi en klúðruðu
þeim auðvitað.
Á 75. mínútu komst Sveinbjörn í
gegnum Valsvörnina en skaut í hliðar-
nctið. Rétt á eftir varði Brynjar glæsilega
hörkuskot frá ekki nafna sínum honum
Sigþóri Ómarssyni, Skagamanni. Á 80.
mínútu komst Sigþór aleinn í gegn en
skaut beint á Brynjar Guðmundsson,
Valsmarkvörð sem var vel staðsettur.
Sigurður Jónsson hafði þá tekið snöggt
aukaspyrnu frá miðju og inn fyrir óvið-
búna Valsvörnina og Sigþór fékk áður-
nefnt færi.
Á 89. mínútu fengu svo Valsmenn
aukaspyrnu. Hana tók Úlfar Hróarsson,
hinn eitilharði, örfætti Valsbakvörður
og hann þrumaði knettinum að marki
íA, Bjarna tókst þó að verja en hélt ekki
knettinum og barst þá knötturinn út til
Bergþórs Magnússonar sem var í sann-
kölluðu dauðafæri, eins og þeir segja
„proffarnir", en Bjarni var mættur eins
og köttur á Sólvallagötunni og náði að
verja á ótrúlegan hátt. „Fantastiskt".
Valsmenn hófu svo framlenginguna af
ægilegum krafti og fengu góð færi. Valur
Valsson skallaði naumlega framhjá og
Porgrímur átti hörkuskot í þverslá Vals-
marksins.
Eftir þetta fór leikurinn fram sem
barátta og hamagangur en hvorki gekk
né rak og ekki náði neinn að sýna dug
þann er felst í þeirri framkomu að setja
mark. Því miður.
Þrjú gul spjöld voru á lofti í þessum
leik. Þau spjöld komu í hlut þeirr
Sigurðar Jónssonar, Hilmars Sighvats-
sonar og Vals Valssonar.
Bestu mennirnir á vellinum voru þeir
Þorgrímur Þráinsson og Sigurður
Jónsson. Um þann síðarnefnda segi ég
ekkert meir en Þorgrímur er greinilega
í toppæfingu enda hefur hann sýnt jafna
og góða leiki það sem af er þessu
keppnistímabili.
Kynningarrit
Breiðabliks:
■ Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur
gefið út annað tölublað Kynningarrits
deildarinnar og verður að segja að það
er afar veglegt. Vel og glæsilega unnið
og aðstandendum til sóma. Aðal uppist-
aða blaðsins er kynning á stjórn, ung-
linganefnd, meistaraflokksráðum, ölluin
keppnisflokkum deildarinnar ásamt
leikjaniðurröðun í mótum sumarsins,
símaskrá deildarinnar o.fl.
Jafntefli milli Þróttar og IBV 2-2
íEyjum, f framlengdum leik:
Þróttur jafnaði á
lokamínútunni
■ Jafntefli varð í leik Þróttar og ÍBV í
Vestmannacyjum eftir framlengdan
leik, sem lauk 2:2 og skoruðu Þróttarar
jöfnunarmark sitt á lokamínútu fram-
lengingarinnar cn þar var að verki Páll
Olafsson og var mark hans stórglæsilegt,
tók boltann fyrir utan teiginn vinstra
megin og sendi föstu skoti upp í
markhornið fjær án þess að Páll mark-
vörður IBV kæmi nokkrum vörnum við
en hann var illa staðsettur til að ráða við
boltann.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og strax
á 4. mínútunni negldi Kári Þorleifsson
ÍBV boltann í netmöskva Þróttmarksins
eftir sendingu frá Hlyni Stefánssyni en
Þróttarar töldu Kára rangstæðan .
Á þrítugustu mínútu seinni hálfleiks
kom svo jöfnunarmarkið en þá skallaði
Júlíus Júlíusson Þrótti yfir Pál markvörð
ÍBV eftir sendingu frá Páli Ólafssyni.
Jóhann Georgsson skoraði svo seinna
mark ÍBV með skalla á 12 mín. seinni
hálfleiks í framlengingunni og síðan
jafnaði Páll á lokamínútu eins og áður
segir.
Bestu menn ÍBV voru Hlynur og
Kári, besti maður Þróttar Páll Ólafsson.
S.G Eyjum/- FRI
PáU Ólafsson dúndraði inn
KR í erfiðleikum med
Vopnafjarðarliðið!
— en náði að sigra 1-0 í fram-
lengdum leik
■ KR-ingar tryggðu sér rétt til að
leika í 8-liðaúrslitum Bikarkeppni KSÍ
er þcir sigruðu Einherja frá Vopnafirði
á heimavelli þeirra fyrir austan á
grasvelli, nánar tiltekið.
Bæði liðin áttu sín færi í leiknum, en
þeir röndóttu voru ívið meira með
boltann. Eftir venjulegan leiktíma var
staðan 0-0, engin mörk fyrir hina 3-400
hundruð sem létu vel í sér heyra á
meðan á leiknum stóð. En KR-ingum
tókst að skora sigurmarkið í framleng-
ingunni, nánar tiltekið fyrri hlutanum
og var þar að verki Björn Rafnsson frá
Stykkishólmi, anzi mikill markaþefari,
sem er nú loks búinn að ná sér eftir þó
nokkur meiðsli.
Seinni hlutan framlengingarinnar
átti svo Einherji að mestu leyti og
pressuðu þeir afar stíft en án árangurs.
Birkir Kristinsson var mjög góður í
marki Austfirðinganna og varði ákaf-
lega vel.
Leikurinn var prúðmannlega leikinn
og oft á tíðum mjög skemmtilegur og
eins og áður sagði var stemmningin á
vellinum væna mjög góð enda ekki
amalegt að fá 3-400 mannsc á völlinn á
Vopnafirði.
GG/Jól
Það var markalaust hjá Val og í A í gær en hart var nú barist. Á innfelldu myndinni sést besti maður IA, Sigurður Jónsson.
(Tímamynd Ari)
Knattspyrnusýning:
FH BURSTAÐI ÞÓR
■ FH gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði
Þór frá Akureyri 5:1 í 16 liða úrslitum
bikarkeppninnar á Kaplakríkavelli í gær-
kvöldi.
Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti í
fyrri hálfleik og á 23. mín. náði Helgi
Bentsson að skora eftir misheppnaða
sendingu hjá FH-ingum. Annars var
nokkuð jafnræði með liðunum í fyrri
hálfleik en Þórsarar fengu þó öllu hættu-
legri marktækifæri. í síðari hálfleik stóð
ekki steinn yfir steini hjá Þór, vörnin
opnaðist upp á gátt hvað eftir annað og
FH-ingar gengu á lagið. Ólafur Dani-
valsson sem var yfirburðarmaður á
vellinum jafnaði fyrir FH strax á 3. mín.
1:1. Annað mark FH var sérlega fallegt.
Magnús Pálsson gaf bananasendingu
yfir Þorstein markvörð Þórs og Pálmi
Jónsson átti auðvelt með að skalla
knöttinn í netið, 2:1. Á 25. mín. stakk
Pálmi Jónsson hægfara varnarmenn Þórs
af og skoraði sitt annað og þriðja mark.
Skömmu síðar komst Jón Erling Ragn-
arsson upp að endamörkum og gaf fyrir.
Þorsteinn hafði hendur á knettinum en
missti hann siðan inn á klaufalegan hátt,
4:1. Viðar Halldórsson skoraði síðan 5.
markið eftir að FH-ingar höfðu platað
Þórsara upp úr skónum. Hjá Þór stóð
ekki steinn yfir steini í síðari hálfleik þó
sýndi Þorsteinn markvörður stundum
laglega markvörslu. Lang bestur hjá FH
var Ólafur Danivalsson en einnig áttu
Viðar Halldórsson og Pálmi Jónsson
góðan leik ASl
— Víkverji 2:1
RANGSTODUMARK FÆRÐI
BUKUNUM SIGURINN!
Hér liggur knötturinn í netinu eftir vítaspymu Alberts Jónssonar Víkverja í gærkveldi. A innfelldu myndinni er honum fagnað innilega. Tímamynd: Ari.
■ Breiðablik þurfti rangstöðumark til
að bera sigurorð af 4. deildarliði Vík-
verja á Melavellinum í gær en leikurinn
var liður í 16-liða úrslitum Bikarkeppn-
innar. Leiknum lauk 2-1 fyrir Breiða-
blik.
Víkverjar urðu fyrri til að skora og
skoraði það Albert Jónsson úr víta-
spyrnu eftir að Jón Gunnar Bergs hafði
fellt hann innan vítateigs. Þetta kom
eins og köld vatnsgusa framan í Blikana.
Áttu þeir nokkur hættuleg færi í fyrri
hálfleiknum en Halldór Víkverjamark-
vörður Þórarinsson átti frábæran leik og
varði ævintýralega. Blikunum tókst svo
að jafna á 58. mínútu er Sigurður
Grétarsson fékk knöttinn einn og óvald-
aður á markteig og Halldór átti ekki
möguleika í skot Sigga. Á 72. mínútu
kom svo sigurmark leiksins og skoraði
það Jón Gunnar Bergs. Var hann kol-
rangstæður er hann fékk knöttinn einn
fyrir innan Víkverjavörnina. Liðin skipt-
ust síðan á að sækja það sem eftir var en
þar við sat. Leikurinn var spennandi en
ekki að sama skapi vel leikinn. U.þ.b.
300 manns komu á leikinn og flestir á
bandi Víkverja. Blikarnir áttu erfitt með
að byggja upp spil en Sigurður Grétars-
son átti ágæta spretti. Víkverjar voru
jafnir en besti maður þeirra og jafnframt
vallarins var Halldór markvörður. .,,
Jol
Dregið í Evrópubikarkeppnunum í knattspyrnu í gær:
Yíkingur-Vasa, Ungverjalandi.
ÍBV-Carl Zeiss Jena, A-Þýskalandi.
ÍA-Aberdeen, Skotlandi.
ORIONÍORIOnIORION
Sovétmenn sópa
til sín gullinu
i sundkeppninni!
■ Sovétríkin virðast vera einráð í því að hirða
gullvcrðlaunin í sundkcppni Heimsmeistara-
móts stúdenta sem nú fer fram i Edmonton. í
fyrradag hlaut það öll gullverðlaunin sem um
var keppt. En það er kannski ekki við öðru að
búast þar sem Bandárikin eru, langt frá því að
vera með sitt sterkasta lið og Austur-Þjóöverjar
voru ekki með keppendur. Sergei Zabolötnov
setti nýtt Evrópumet í 200 m baksundi og synti
á tímanum 2:00,42. Það var 23 sekúndubrotum
betra en eldra metið, scm landi hans Vladimir
Shmeetov átti. Sovétmcnn hafa hlotið 11 af 14
gullverðlaunum í sundkeppninni.
Stelpumar
sparka í
kvöld
■ Kvennafótboltinn rullar og rúllar, það er
nú meira hvað hann rúllar. Hann bara kjötrúllar
ckki! Nei en að öllu léttu spaugi siepptu þá eru
tveir leikir á dagskrá í fyrstu deild kvenna í
knattspyrnu í kvöld. Báðir leikirnir hefjast
klukkan átta að staðartima. Á Valsvclli keppa
Valur og Víðir frá Garði og á Víkingsvelli
Víkingur og Skagafljóðin fögru. Áfram stelpur.
Nú svo í annarri deild B-riðli í Keflavík leika
Keflavíkursnótirna'r gegn Haukahlínunum
klukkan átta einnig.
Oddur og Óskar
komust báðir
íúrslití
sínum greinum
á HM-Stúdenta
■ Oddur Sigurðsson og Óskar Jakobsson
spjara sig bærilega á Heimsmeistaramóti Stú-
denta sem nú fer fram í Edmonton ■ Kanada.
í gær sögðu síöustu fréttir að þéir kumpánar,
vestúrfarar og kraftakarlar hafi báðir örugglega
tryggt sér sæti i úrslitunum í þeim greinum er
þeir keppa í.
Óskar er kominn i úrslitin í kúluvarpinu og á
mikla möguleika á að komast á vcrðlaunapall,
ef allt gengur samkvænit áætlun.
Oddur er kominn í úrslitin i 400 m sprett -
hlaupiog á nokkuð góðan „sjens“ á að komast
á verrtlaunapall, einnig ef allt gengur samkvæmt
áætlun.
íslenska lands-
liðið í frjálsum
keppir í Kalott-
keppninni
9. -10. júlí .
■ Um næstu helgi tekur íslenska frjálsíþrótta-
landsliðið þátt í Kalott-keppninni og er það í
10. sinn sem Islendingar tuka þátt í henni.
Að þessu sinni fer kcppnin fram í Noregi,
nánar tiltekið í Alta í norðurhluta landsins.
Þátttakendur í keppninni auk íslendinga eru
úrvalslið Svia, Norðmanna og Finna af Kalott-
svæðunum, það eru landsvæðin norðan 64.
breiddargráðu. ÚtlJt er fyrir spennandi keppni
og eiga íslendingar ágæta möguleika á að sigra
samanlagt, en það hefur aðeins einu sinni gerst,
árið 1975 í Tromsö. Nokkrum sinnum höfum
við unnið í annaðhvort karla- eða kvennaflokki.
íþróttasiða Tímans sendir keppendum og
öðrum íslendingum baráttukveðjur með von
um góð afrek og sigur að launum.